Velkomin/n á síðuna mína
Heimsóknir
Í dag:  50  Alls: 91553
Klukkan
samfrímúrarareglan
Spes barnahjálp
Bútasaumsfélagið
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 19 febrúar
Um 20. okt.2010 var ég norður á Akureyri og sá falleg jólaefni. Af einu efninu, köflóttu, var til 1,7m og skellti ég mér á það. Þetta verða því köflótt jól í ár. Þessi dúkur með Ohio-stjörnu er einn af framleiðslunni.

Næsti dúkur úr köflóttu syrpunni var þessi stjörnudúkur eftir sniði frá Kristínu Höllu, saumavinkonu minni. Þessi endaði undir jólatré uppi i Wengen. Sómdi sér ágætlega þar og féll eins og flís við rass í skotið þar sem jólatrénu var fundinn staður

Aðferðin beint á bak og vatt bregst ekki. Gaman að sauma þennan löber, reyndar eins og flest annað. :-)

Hér er köflótta syrpan í öllu sínu veldi.

Nú um jólin 2010 náði ég mynd af þessum dúk sem ég saumaði 2002. Fljúgandi gæsirnar á honum er ágætis mynstur og dúkurinn gladdi hjarta mitt. Það spillti ekki að hann var í notkun.

Árið 2001, eftir að við Pála fórum á bútasaumsnámskeið hjá Frú Bóthildi þá gaf ég öllum systkinum mínum svona löber í afmælisgjöf. Löberinn hafði verið eitt af þremur stykkjum sem við lærðum á námskeiðinu og því var kjörið að æfa sig í að sauma hann sex sinnum! Enginn löber var eins. Gógó systir fékk þennan.

Þetta teppi gaf ég Gógó systur fyrir nokkrum árum. Mig langaði að sýna henni í verki þakklæti mitt fyrir alla veturna sem hún hlúði að mér og ég var í hennar skjóli. Kannski markaði sú dvöl lífsbraut mína meira en nokkuð annað.- Á næstu mynd sést eitt hornið á teppinu. Það er svolítið fallegt.

Einu sinni langaði mig að hanna eitthvað sjálf frá grunni. Þá saumaði ég þessa hrærivélarhlíf fyrir dóttur mína og aðra svipaða handa hinni dótturinni. Þessi lukkaðist betur fannst mér. Ég var með 7 liti sem ég saumaði í ræmur og skar niður og felldi saman í mósaík. Stolt af þessu.

Þessi löber er nýr af nálinni í orðsins fyllstu merkingu. Það var gaman að sauma hann og setja saman grunninn úr afgöngum af ýmsu tagi. Einungis kanturinn og bakið er úr nýju efni.

Blómin saumaði ég á í vélinni minni góðu.

Hér getur að líta helgaraverkefnið hjá Bót.is haustið 2008. Ég saumaði stóran dúk á borðstofuborðið mitt. Hann er flottur. Á næstu mynd prófaði ég að breiða hann á rúm til gamans!

Er hún ekki krúttleg! Gæti vel hugsað mér sauma fleiri buddur. Upplagt að gefa þær í afmælisgjafir, jólagjafir eða einfaldlega þegar þörf er á að kæta einhvern.

Sæt og ágætlega stór. Upplögð í sundtöskuna eða leikfimina.. Get hugsað mér að búa til fleiri af báðum gerðum. Upplagt til gjafa!

Við, nokkrar konur, fengum þær í Bót.is til að halda námskeið fyrir okkur í aðrferðinni beint á bak og vatt. Þetta var kennslustykkið. Ég hef saumað meira eftir þessu mynstri síðar og líkar það vel.

Fattarateppi úr flóneli. Haukur, maðurinn minn færði mér fattarana eitt sinn þegar hann kom frá Davis í Kaliforníu en þar var skemmtileg bútasaumsbúð, Pincushion. Var áskrifandi að 8 fötturum frá þeim þrisvar á ári fram að hruni...

Bjarki Jón fékk þetta teppi. Mynstrið fékk ég hjá Pálu sem hafði fengið hugmyndina hjá Jóhönnu í Frú Bóthildi

Elías fékk þetta teppi þegar hann fæddist. Það er úr batikfötturum og saumað eftir fattaramynstri frá Kaliforníu en ég var í áskrift að kaupa 8 fattara frá þeim þrisvar á ári. Skemmtilegt þar til hrunið skall á...

Bogga vinkona mín dó 2002. Ég sakna hennar enn. Sonur hennar gekk í hjónaband nokkru síðar og langaði mig að gleðja hann  með einhverju í minningu mömmu hans. Gerði þetta mest fyrir sjálfa mig. Púðinn var úr offwhite efnum og varð satt að segja rosalega fallegur. Hann er saumaður með paperpiecing aðferð og er sennilega crazy quilt dæmi en ég hef þó aldrei meðvitað unnið með þeirri aðferð. Ég saumaði perlur, blúndur og auðvitað alls konar spor í púðann.

Teppi utan um jólatrésfót (8litir). Hef líka saumað úr 4 litum og held að mér finnist það fallegra. Auðvelt en skemmtilegt. Mynstrið fékk ég hjá Pálu, vinkonu minni, en hún hafði keypt pakningu hjá Frú Bóthildi á sínum tíma með öllu tilheyrandi.

Kidda systir mín fékk þessar diskamottur í afmælisgjöf 2008

Anna Margrét, æskuvinkona mín, á að fá þennan dúk í jólagjöf. Hann er sterkari í litum en myndin gefur til kynna. Það er dauft „gull“ í ljósa efninu og því gula sem endurkastar birtunni og deyfir myndina (held ég). Er dálítið ánægð með hann. Mér finnst hann svo konunglegur (Afsakið sjálfshólið.)

Svona lítur jóladúkurinn sem Agnes mín á að fá út. Ég hafði hann heilan og quiltaði hann einungis með því að hnýta með rauðu garni í önnur hver samskeyti.

Nýjasta afrekið, teppi með vináttufléttumynstri. Teppið er saumað úr afgöngum. Hrafnhildur í Stjörnuspori stakk teppið.

Svona er mynstrið í nærmynd. Hér njóta litirnir sín betur. Ég lauk við að sauma bryddinguna á nú í lok júní 2010.

Timbleberries 2008. Mér finnst þetta teppi svolítið jólalegt. Ásaumaðar myndirnar af könglunum í miðjunni gera það að verkum. Verð að drífa mig og sauma líka á púðana á höfðagafli rúmsins okkar svo að allt verði í stíl.

Hugi minn fékk þetta teppi frá ömmu. Það er saumað eftir sniði Elínar Guðjónsdóttur á Þverlæk. Ég hef saumað tvö önnur eftir þessu sniði og það er gaman að sjá hvernig útfærslur á litum breyta teppunum.

Sama mynstur og á teppi Huga. Magnús Arthúrsson fékk þetta.

KÖRFUTEPPI er nafnið sem ég hef valið þessu veggteppi. Ég saumaði það úr afgöngum seinasta árið sem mamma lifði. Var þá alltaf með saumatöskuna með mér þegar ég sat hjá henni. Kanturinn er úr afgöngunum af afgöngunum! Hann kemur bara vel út. Þegar ég saumaði myndirnar á braut ég inn af með nálaroddinum. Hrafnhildur í Stjörnuspori stakk teppið.

Diskamottur. Ég saumaði sex og þær eru fínar, meira að segja dálítið hátíðlegar, ekki satt.

Þegar Munda frænka átti afmæli 2009 saumaði ég verkfæratösku handa henni eftir sniði sem var óvissuverkefni á saumahelgi Bótar 2008.

Mánaðarteppi frá Timbleberries 2003
Mánaðarteppi frá Timbleberries 2003
Paper piecing verkefni frá Bóthildi. Það er mjög gaman að sauma á þennan hátt. Erfiðast að átta sig á að allt er unnið í spegilmynd en það kemur...

Kennsluverkefni frá Bóthildi í ásaumi. Kemur ágætlega út í púða og fer vel á rúminu í Lyngholti.

Þetta teppi var verkefni á saumahelgi Bótar í Minni- Mástungu 2006. Verkefnið virkaði flókið í upphafi en reyndist einstaklega ánægjulegt og fjölbreytt í gerð.

Timbleberriesteppi 2007. Ég saumaði síðar púða á höfðagaflinn úr efninu sem hér er breitt á hann.

Ella Jóna frænka fékk þessa ´(ágúst 2009). Þeir eru saumaðir beint á bak og vatt.

Þessir enduðu í Sviss hjá Margréti mömmu Söru, tengdadóttur minnar. Þeir gerðu lukku og í staðinn gaf hún mér heklaða pottaleppa sem tengdamamma hennar hafði búið til.

Helgarverkefni Bótar 2008. Ég gerði stóran dúk sem fer mjkög vel á borðstofuborðinu mínu, jafnvel þó ég stækki það fyrir 10 manns.

Snyrtibudda Önnu Lísu. Vona að mér hafi tekist að ímynda mér hvað 19 ára stúlku þykir fallegt!

Bláa línan. Ég er ánægð með hana, bláu línuna.

Vináttufléttuteppið komið á rúm í Lyngholti. Þarf að sauma nýjar gardínur í stíl.

Dóttursonur minn á að fá þetta teppi í stúdentsgjöf. Ég er svolítið montin af því. Þrátt fyrir að ég hefði fyrirmynd þá hannaði ég það að miklu leyti sjálf. Um er að ræða ohiostjörnur sem eru saumaðar ýmist í ljósan eða dökkan grunn. Hrafnhildur í Stjörnuspori stakk teppið prýðilega.

Teppið er 2,4 x 1,65 að stærð.
Teppið er 2,4 x 1,65 að stærð.

Þetta teppi fær elsta barnabarnið. Bakið er úr flóneli svo það geti hjúfrað sig undir teppið þegar svo ber undir. Mynstrið er einfalt en snoturt. Ég hafði 4 grunna og 4 liti í þvi sem ég kalla múrsteina.

Handavinnupokinn minn. Tölurnar í miðju blómanna gera sitt.

Dóttursonur minn fær þetta teppi. Hann bað mig að sauma handa sér teppi og fékk þetta sem hér gefur að líta í afmælisgjöf um daginn þegar hann varð 11 ára. Í herberginu hans eru dökkbláar flauelsgardínur þannig að teppið sómir sér vel á rúminu hans.

Dótturdóttir mín og nafna er mikið fyrir bleikt. Allt skal vera bleikt. Hún fékk ósk sína uppfyltta nú um jólin þegar ég saumaði þessa tösku handa henni úr efnum frá Kaffe Fasset. (2011)

Vía frænka gaf mér beislismél sem henni höfðu verið gefin. Hún sagði að mamma hefði átt þau, hefði fengið þau í brúðargjöf en gefið grannkonu sinni þau þegar við fluttum úr Haukadal. Þessi góða grannkona gaf Víu mélin með þeim orðum að henni fyndist að þau ættu að vera í fjölskyldunni. Vía frænka var svo sæt að gefa mér þau í sumar. Þá hét ég því að sauma handa henni eitthvað sem þakklætisvott. Þessi taska er votturinn.